Innlendir fjárfestar kaupa helmingshlut í Algalíf

Helmings hlutur í líftæknifyrirtækinu Algalíf hefur verið seldur hópi innlendra fjárfesta undir forystu framtakssjóðsins ALDIR I slhf. Norðmennirnir Kenneth G. Bern og Andres K. Flaaten munu áfram eiga hinn helming hlutafjárins. Stjórnendateymi félagsins verður óbreytt undir forystu forstjórans Orra Björnssonar. Algalíf er íslenskt líftæknifyrirtæki sem framleiðir sjálfbært, náttúrulegt astaxanthín úr örþörungum. Það er öflugt andoxunarefni […]
Algalíf stefnir á almennan hlutabréfamarkað árið 2025.

Stjórn líftæknifyrirtækisins Algalífs samþykkti á fundi sínum 15. desember að hefja undirbúning fyrir skráningu fyrirtækisins á almennan hlutabréfamarkað árið 2025. Stjórnin hefur fengið ráðgjafafyrirtækið Hamrar Capital Partners til að halda utan um undirbúning skráningarinnar og veita eigendum félagsins sértæka ráðgjöf í ferlinu. Þá var Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri og einn eiganda ráðgjafafyrirtækisins Hamrar Capital Partners, kjörinn stjórnarformaður Algalífs á […]
Algalíf og HS Orka undirrita 15 ára samning um raforkukaup

Líftæknifyrirtækið Algalíf hefur undirritað nýjan 15 ára samning um kaup á umhverfisvænni raforku af HS Orku. Með samningnum tryggir Algalíf sér næga hreina orku vegna yfirstandandi stækkunar fyrirtækisins að Ásbrú í Reykjanesbæ. Algalíf ræktar örþörunga og vinnur úr þeim fæðubótaefnið astaxanthín. Græn raforka er meðal mikilvægustu aðfanga Algalífs. Sá fyrirsjáanlegi stöðugleiki í orkuverði sem bundinn […]
Algalíf skrifar undir samning um þróun á lífplasthúð úr þörungahrati

Líftæknifyrirtækið Algalíf Iceland ehf. var stofnað 5. maí 2012 og er því tíu ára. Það er Algalíf mikil ánægja á þessum tímamótum að skrifa undir samning við sprotafyrirtækið Marea ehf. um þróun á lífplasthúð (e. Food coating) úr þörungahrati. Um er að ræða næfurþunna lífniðurbrjótanlega (e. biodegradable) húð um matvæli sem mun bæði minnka plastnotkun og […]
Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin annað árið í röð.

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2022 (e. Biotechnology Awarsds) sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni. Algalíf hlaut sömu verðlaun í fyrra og var þá fyrsta íslenska fyrirtækið til að hljóta þau. Verðlaunin eru veitt árlega í nokkrum mismunandi flokkum, en er í sjöunda sinn sem Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin eru veitt. Algalíf […]
Náttúrleg plöntuvarnarefni úr örþörungum

Íslenska líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á framleiðslu náttúrlegra plöntuvarnarefna úr örþörungum í samstarfi við franska líftæknifyrirtækið ImmunRise Biocontrol til notkunar í landbúnaði. Áætluð alþjóðleg markaðsstærð er yfir 1. 000 milljarðar króna. Þegar hefur fengist rúmlega hundrað milljóna styrkur frá Evrópusambandinu til verkefnisins. 1.000 milljarða alþjóðlegur markaður. Varnarefni eru notuð í landbúnaði víða um heim og áætlað er […]