Fréttir Archives - Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae https://algalif.is/category/frettir/ Algalif hf is a leading supplier of high-grade natural astaxanthin from microalgae, produced at its state-of-the-art facility in Iceland. Fri, 08 Sep 2023 16:07:34 +0000 en-US hourly 1 https://wordpress.org/?v=6.7.1 https://algalif.is/wp-content/uploads/2021/05/Logo-Algaif-25032021-100x100.png Fréttir Archives - Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae https://algalif.is/category/frettir/ 32 32 Náttúrleg plöntuvarnarefni úr örþörungum https://algalif.is/natturleg-plontuvarnarefni-ur-orthorungum/ Fri, 08 Sep 2023 16:06:00 +0000 https://algalif.is/?p=3073 Íslenska líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á framleiðslu náttúrlegra plöntuvarnarefna úr örþörungum í samstarfi við franska líftæknifyrirtækið ImmunRise Biocontrol til notkunar í landbúnaði. Áætluð alþjóðleg markaðsstærð er yfir 1. 000 milljarðar króna. Þegar...

The post Náttúrleg plöntuvarnarefni úr örþörungum appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Íslenska líftæknifyrirtækið Algalíf stefnir á framleiðslu náttúrlegra plöntuvarnarefna úr örþörungum í samstarfi við franska líftæknifyrirtækið ImmunRise Biocontrol til notkunar í landbúnaði. Áætluð alþjóðleg markaðsstærð er yfir 1. 000 milljarðar króna. Þegar hefur fengist rúmlega hundrað milljóna styrkur frá Evrópusambandinu til verkefnisins.

1.000 milljarða alþjóðlegur markaður.

Varnarefni eru notuð í landbúnaði víða um heim og áætlað er að markaður með þau á heimsvísu velti sem nemur nærri eitt þúsund milljörðum íslenskra króna. Þessi markaður fer ört stækkandi og áætlað er að hann muni tvöfaldast á næstu fimm árum. Stór hluti þeirra efna sem nú eru notuð er kemískur en mikil eftirspurn er eftir náttúrulegum staðgönguefnum. Evrópusambandið styður slíka umbreytingu og stefnir á helmingun á notkun kemískra varnarefna fyrir árið 2030.

Þróunarstyrkur frá Evrópusambandinu.

Algalíf og ImmunRise hafa þegar fengið þróunarstyrk úr Eureka Eurostars áætlun Evrópusambandsins sem nemur rúmlega 100 milljónum íslenskra króna, til að þróa ný og umhverfisvæn plöntuvarnarefni úr örþörungum. Frumtilraunir síðustu missera lofa góðu og mögulegt að innan fárra ára rísi ný örþörungaverksmiðja á Íslandi sem hluti þessa verkefnis.

Eitt öflugasta örþörungafyrirtæki Evrópu.

Algalíf er nú þegar leiðandi fyrirtæki í framleiðslu örþörunga á heimsvísu en það er stærsti framleiðandi Evrópu á fæðubótaefninu astaxanthín. Unnið er að lokauppsetningu nýrrar hátækni örþörungaverksmiðju fyrirtækisins á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þegar hún hefur náð fullum afköstum á næsta ári mun framleiðslan verða rúmlega þreföld miðað við það sem nú er. Þar með verður Algalíf stærsti framleiðandi í heimi á náttúrulegu astaxanthíni í samtals 13.300 m² húsnæði.

Forstjóri Algalífs er Orri Björnsson og starfsmenn eru um 70.

Franskur frumkvöðull í rannsóknum.

ImmunRise Biocontrol er franskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum og þróun lífvirkra varnarefna úr þörungum. Fyrstu afurðir þess eru umhverfisvæn sveppavarnarefni fyrir landbúnað sem nú eru í skráningar- og vottunarferli hjá viðeigandi yfirvöldum í Evrópusambandinu og Bandaríkjunum.

The post Náttúrleg plöntuvarnarefni úr örþörungum appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Algalíf stefnir á almennan hlutabréfamarkað árið 2025. https://algalif.is/algalif-a-markad-2025/ Sun, 18 Dec 2022 20:43:06 +0000 https://algalif.is/?p=2924 Stjórn líftæknifyrirtækisins Algalífs samþykkti á fundi sínum 15. desember að hefja undirbúning fyrir skráningu fyrirtækisins á almennan hlutabréfamarkað árið 2025. Stjórnin hefur fengið ráðgjafafyrirtækið Hamrar Capital Partners til að halda...

The post Algalíf stefnir á almennan hlutabréfamarkað árið 2025. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Stjórn líftæknifyrirtækisins Algalífs samþykkti á fundi sínum 15. desember að hefja undirbúning fyrir skráningu fyrirtækisins á almennan hlutabréfamarkað árið 2025. Stjórnin hefur fengið ráðgjafafyrirtækið Hamrar Capital Partners til að halda utan um undirbúning skráningarinnar og veita eigendum félagsins sértæka ráðgjöf í ferlinu. Þá var Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri og einn eiganda ráðgjafafyrirtækisins Hamrar Capital Partners, kjörinn stjórnarformaður Algalífs á fundinum.

Algalíf ræktar örþörunga á Ásbrú í Reykjanesbæ og framleiðir úr þeim andoxunarefnið astaxanthín. Yfirstandandi 7.500m² stækkun á verksmiðju Algalífs er komin vel á veg en heildarstærð verksmiðju Algalíf verður 12.500m² þegar verkinu lýkur seint á næsta ári. Framleiðslugeta félagsins mun jafnframt fjórfaldast frá því sem nú er.

Nýja verksmiðjan verður stærsta og fullkomnasta verksmiðja í heimi í framleiðslu á náttúrulegu astaxanthín og er heildarfjárfjárfesting vegna stækkunarinnar um 4,5 milljarðar króna.

Sjálfbærni verður áfram leiðarljós í starfseminni en við ræktun örþörunga umbreytist koltvísýringur í súrefni við ljóstillífun þörunganna. Algalíf er vottað kolefnishlutlaust fyrirtæki og notar eingöngu græna jarðvarmaorku frá HS Orku til framleiðslunnar í samræmi við langtímasamning fyrirtækjanna.

„Stækkunin hefur gengið í samræmi við áætlanir og fyrstu kerfin er þegar virk. Nýja verksmiðjan mun hjálpa Algalíf að styrkja sig í sessi sem eitt fremsta fyrirtæki í heimi í framleiðslu og markaðssetningu á náttúrulegu astaxanthíni. Til viðbótar mun bætt aðstaða gefa ný tækifæri til að leggja aukna áherslu á rannsóknir og þróun og sækja inn á nýja markaði,“ segir Orri Björnson, forstjóri Algalífs.

„Við erum afar spennt yfir því að fá Baldur Stefánsson til liðs við okkur sem stjórnarformann., og einnig að geta fljótlega aukið framleiðslu félagsins umtalsvert í nýrri hátækniverksmiðju. Fyrirhuguð skráning á hlutabréfamarkað mun gera okkur kleift að vaxa enn hraðar og styrkja okkur sem leiðandi fyrirtækis í rannsóknum og þróun, sem mun skila sér til viðskiptavina okkar og annarra hagaðila,“ segir Kenneth Bern, Forstjóri HeTe Invest AS eiganda Algalífs.

The post Algalíf stefnir á almennan hlutabréfamarkað árið 2025. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Algalíf og HS Orka undirrita 15 ára samning um raforkukaup https://algalif.is/algalif-og-hs-orka-undirrita-15-ara-samning-um-raforkukaup/ Thu, 07 Jul 2022 14:02:08 +0000 https://algalif.is/?p=2853 Líftæknifyrirtækið Algalíf hefur undirritað nýjan 15 ára samning um kaup á umhverfisvænni raforku af HS Orku. Með samningnum tryggir Algalíf sér næga hreina orku vegna yfirstandandi stækkunar fyrirtækisins að Ásbrú...

The post Algalíf og HS Orka undirrita 15 ára samning um raforkukaup appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Líftæknifyrirtækið Algalíf hefur undirritað nýjan 15 ára samning um kaup á umhverfisvænni raforku af HS Orku. Með samningnum tryggir Algalíf sér næga hreina orku vegna yfirstandandi stækkunar fyrirtækisins að Ásbrú í Reykjanesbæ.

Algalíf ræktar örþörunga og vinnur úr þeim fæðubótaefnið astaxanthín. Græn raforka er meðal mikilvægustu aðfanga Algalífs. Sá fyrirsjáanlegi stöðugleiki í orkuverði sem bundinn er í samninginn styrkir því alþjóðlega samkeppnisstöðu fyrirtækisins til langs tíma.

HS Orka er þekkt fyrir afhendingaröryggi og umhverfisvæna framleiðslu á raforku úr jarðvarma. Það fellur því einkar vel að umhverfisstefnu Algalífs að gera langtímasamning við HS Orku, en Algalíf leggur mikla áherslu á sjálfbærni, hreinleika afurða og lágmarks vistspor framleiðsluferla.

Framkvæmdir við stækkun verksmiðjunnar á Ásbrú ganga vel en framleiðslugetan mun þrefaldast og starfsmannafjöldi tvöfaldast úr 40 í 80 þegar framkvæmdum lýkur 2023. Áætlað er að árleg velta fari yfir fimm milljarða króna eftir stækkun og með tryggum aðgangi að raforku er ekkert því til fyrirstöðu að fyrirtækið verði það stærsta á heimsvísu í framleiðslu á sjálfbæru náttúrulegu astaxanthíni.

Algalíf hefur verið í viðskiptum við HS orku frá því fyrirtækið var stofnað fyrir áratug. Stjórnendur beggja fyrirtækja eru ánægðir með samstarfið hingað til og vænta mikils af samstarfinu næstu árin.

The post Algalíf og HS Orka undirrita 15 ára samning um raforkukaup appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Algalíf skrifar undir samning um þróun á lífplasthúð úr þörungahrati https://algalif.is/algalif-skrifar-undir-samning-um-throun-a-lifplasthud-ur-thorungahrati/ Thu, 05 May 2022 11:37:25 +0000 https://algalif.is/?p=2842 Líftæknifyrirtækið Algalíf Iceland ehf. var stofnað 5. maí 2012 og er því tíu ára. Það er Algalíf mikil ánægja á þessum tímamótum að skrifa undir samning við sprotafyrirtækið Marea ehf. um...

The post Algalíf skrifar undir samning um þróun á lífplasthúð úr þörungahrati appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Líftæknifyrirtækið Algalíf Iceland ehf. var stofnað 5. maí 2012 og er því tíu ára. Það er Algalíf mikil ánægja á þessum tímamótum að skrifa undir samning við sprotafyrirtækið Marea ehf. um þróun á lífplasthúð (e. Food coating) úr þörungahrati. Um er að ræða næfurþunna lífniðurbrjótanlega (e. biodegradable) húð um matvæli sem mun bæði minnka plastnotkun og draga úr matarsóun með því að auka geymsluþol matvæla.

Þessi nýting er nýnæmi og getur orðið mikilvægt skref til aukinnar sjálfbærni á Íslandi og innlegg í verðmætaskapandi hringrásarhagkerfi framtíðarinnar. Hún kemur til viðbótar núverandi þróun Marea á lífplastfilmum úr þara.

Um Marea

Marea ehf. er sprotafyrirtæki á sviði líftækni, sem hefur undanfarin ár verið að þróa Þaraplast, lífplast úr þara. Marea hefur meðal annars hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði, hvatningarverðlaun sjávarútvegsráðstefnunnar og TM 2021 og er keppandi í úrslitum í alþjóðlegu TOM FORD Plastic Innovation Prize. www.marea.is

Um Algalíf

Líftæknifyrirtækið Algalíf er stærsta fyrirtækið í örþörungaframleiðslu á Íslandi og eitt af þeim stærstu í Evrópu. Það hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 50 manns og ársveltan er rúmur einn og hálfur milljarður króna. Framkvæmdir við fjögurra milljarða þreföldun á framleiðslunni eru vel á veg komnar.

Algalíf leggur mikla áherslu á sjálfbærni en framleiðslan fer fram með umhverfisvænum orkugjöfum í stýrðu umhverfi innanhúss í 5.500 m² húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ. Við framleiðsluna eru bundin um 75 tonn af koltvísýringi en um 60 tonn af súrefni eru losuð út í andrúmsloftið. Ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í framleiðsluferlinu hjá Algalíf og efnanotkun er í lágmarki. Einu hráefnin til framleiðslunnar eru auk þörunganna sjálfra, vatn, næring og ljós (raforka). Annar úrgangur en súrefni er lífrænt þörungahrat sem nú er nýtt sem áburður. www.algalif.is

The post Algalíf skrifar undir samning um þróun á lífplasthúð úr þörungahrati appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin annað árið í röð. https://algalif.is/algalif-hlytur-althjodlegu-ghp-liftaekniverdlaunin-2022/ Fri, 04 Mar 2022 15:22:45 +0000 https://algalif.is/?p=2774 Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2022 (e. Biotechnology Awarsds) sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni. Algalíf hlaut sömu verðlaun í fyrra og var þá fyrsta íslenska...

The post Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin annað árið í röð. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2022 (e. Biotechnology Awarsds) sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni. Algalíf hlaut sömu verðlaun í fyrra og var þá fyrsta íslenska fyrirtækið til að hljóta þau.

Verðlaunin eru veitt árlega í nokkrum mismunandi flokkum, en er í sjöunda sinn sem Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin eru veitt. Algalíf framleiðir astaxanthín úr örþörungum sem ræktaðir eru í starfsstöð fyrirtækisins í Reykjanesbæ. Hjá fyrirtækinu starfa um tæplega 50 manns.

Verðlaunin eru veitt af tímaritinu Global Health and Pharma sem er eitt víðlesnasta og virtasta fagtímarit á sviði heilsuvísinda. Útgefandi er AI Global Media í Bretlandi gefur út tólf mismunandi fagtímarit sem mörg eru leiðandi í umfjöllun á sínu sviði.

Algalíf er lang stærsta örþörungafyrirtæki á Íslandi og í fararbroddi í Evrópu. Það hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi. „Starfsemin gengur vel, við nú að stækkun og það er heiður að fá viðurkenningu í formi þessara virtu verðlauna tvö ár í röð“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Photo by Styrmir Kári & Heiðdís Photography.

Í lok síðasta 2020 var tilkynnt um fyrirhugaða fjögurra milljarða króna stækkun fyrirtækisins (www.algalif.is/staekkun). Framkvæmdir eru komnar vel á veg en áætlað er að þeim ljúki á næsta ári. Sérhæft og vel menntað starfsfólk heldur framleiðslukostnaði Algalífs í skefjum með nýsköpun og nýtingu hátæknilausna á öllum stigum. „Þessi verðlaun eru fyrst og fremst heiður fyrir starfsfólk Algalífs“ segir Orri Björnsson, forstjóri.

Hér má finna nánari upplýsingar um veitenda verðlaunanna:

www.ghp-news.com

www.aiglobalmedialtd.com/brands

Nánari upplýsingar um Algalíf er að finna hér:

www.algalif.com

 

Myndir:

 

Photo by Styrmir Kári & Heiðdís Photography.

 

The post Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin annað árið í röð. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Algalíf hlýtur sjálfbærnimerki Landsbankans. https://algalif.is/algalif-hlytur-sjalfbaernimerki-landsbankans/ Wed, 09 Feb 2022 09:00:47 +0000 https://algalif.is/?p=2722 Líftæknifyrirtækið Algalíf hefur hlotið sjálfbærnimerki Landsbankans. Sjálfbærnimerki Landsbankans er veitt þeim fyrirtækjum sem uppfylla skilyrði um sjálfbærni sem sett eru fram í sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og standast strangar kröfur um umhverfisvæn...

The post Algalíf hlýtur sjálfbærnimerki Landsbankans. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Líftæknifyrirtækið Algalíf hefur hlotið sjálfbærnimerki Landsbankans. Sjálfbærnimerki Landsbankans er veitt þeim fyrirtækjum sem uppfylla skilyrði um sjálfbærni sem sett eru fram í sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og standast strangar kröfur um umhverfisvæn verkefni.

Algalíf er í fararbroddi í umhverfismálum. Fyrirtækið framleiðir fæðubótaefnið astaxanthín úr örþörungum. Einungis er notast við græna jarðvarmaorku, afurðir fyrirtækisins eru vottaðar kolefnishlutlausar, öll ökutæki eru græn, ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í framleiðsluferlinu og öll innkaup eru gerð með sjálfbærni að leiðarljósi.

„Þessi viðurkenning sýnir okkur að það eru góð viðskipti að vinna af heilindum að samfélagsábyrgð, umhverfismálum og sjálfbærni og hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Algalíf framleiðir astaxanthín úr örþörungum. Einungis er notast við græna jarðvarmaorku, afurðir fyrirtækisins eru vottaðar kolefnishlutlausar, öll ökutæki eru græn, ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í framleiðsluferlinu og innkaup eru gerð með sjálfbærni að leiðarljósi.

Hjá Algalíf starfa nú tæplega 50 manns en stækkun á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins á Ásbrú í Reykjanesbæ er komin vel á veg og starfsmönnum á enn eftir að fjölga. Framleiðslan mun þrefaldast og eftir stækkunina verður Algalíf öflugasta fyrirtækið á sínu sviði í heiminum.

Á myndinni eru Orri Björnsson, forstjóri Algalífs og Hrafn Harðarson, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum

The post Algalíf hlýtur sjálfbærnimerki Landsbankans. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Kolefnishlutleysi astaxanthín afurða Algalífs alþjóðlega vottað af CarbonNautral® https://algalif.is/algalif-vottad-kolefnishlutlaust/ Sat, 22 Jan 2022 17:05:00 +0000 https://algalif.is/?p=2684 Afurðir líftæknifyrirtækisins Algalífs er nú vottaðar kolefnishlutlausar í samræmi við umhverfisstefnu fyrirtækisins sem kynnt var í fyrra. Algalíf framleiðir plöntuþörunga með ljóstillifun á Ásbrú í Reykjanesbæ. Helstu aðföng til framleiðslunar...

The post Kolefnishlutleysi astaxanthín afurða Algalífs alþjóðlega vottað af CarbonNautral® appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Afurðir líftæknifyrirtækisins Algalífs er nú vottaðar kolefnishlutlausar í samræmi við umhverfisstefnu fyrirtækisins sem kynnt var í fyrra. Algalíf framleiðir plöntuþörunga með ljóstillifun á Ásbrú í Reykjanesbæ. Helstu aðföng til framleiðslunar eru hreint vatn og græn raforka úr jarðvarma fyrir gróðurljós af nýjustu gerð.

Algalíf er í fararbroddi í umhverfismálum. Öll ökutæki félagsins eru græn, aðföng eru umhverfisvottuð og rekin er víðtæk sorplágmörkunarstefna. Algalíf notar ekkert jarðefnaeldsneyti við framleiðslu sína. Algalíf valdi vottunina frá CarbonNeutral® vegna þess hversu virt og áræðanleg hún er. Meðal annarra alþjóðlegra fyrirtækja með þessa vottun eru tæknifyrirtækin Microsoft og Logitech, og fjölmiðlarisinn Sky.

Hjá Algalíf vinna nú um 50 manns en verða bráðlega um 80 þegar framleiðsla í fjögurra milljarða nýbyggingu verður komin á fullan skrið á næsta ári. Fyrirtækið hefur hlotið fjölda innlendra og alþjóðlegra viðurkenninga á sviði líftækni, nýsköpunar, umhverfismála og rekstrar. Þá hefur Orri Björnsson forstjóri hlotið margvíslegan heiður fyrir að hafa leitt uppbyggingu fyrirtækisins frá upphafi.

Vottunin er hluti af áralangri vegferð Algalífs til sjálfbærni. ,,Jafnvel þótt við séum í grunnin eitt af grænustu fyrirtækjum landsins þá liggur talsverð vinna í því að fá jafn virta alþjóðlega vottun. En við teljum það ekki eftir okkur, því orðum um samfélagsábyrgð og græna framtíð verða að fylgja aðgerðir” segir Orri Björnsson forstjóri Algalífs. ,,Það liggur auðvitað fyrir að það fylgir því kostnaður til skemmri tíma að taka umhverfismálin alvarlega og vera í fararbroddi, en við teljum að að þetta muni skila sér til lengri tíma í meiri sölu og aukinni verðmætasköpun.”

,,Við erum öll stolt af því að vera grænt fyrirtæki sem leggur sitt af mörkum til að leysa þann umhverfisvanda sem að steðjar” segir Orri. ,,Með því sýnum við ábyrð og virðingu fyrir landinu, samfélaginu og samborgurum okkar.”

The post Kolefnishlutleysi astaxanthín afurða Algalífs alþjóðlega vottað af CarbonNautral® appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Fyrsta skóflustunga að nýrri verksmiðju Algalífs í Reykjanesbæ https://algalif.is/fyrsta-skoflustunga-a-nyrri-verksmidju-algalifs-i-reykjanesbae/ Fri, 04 Jun 2021 15:00:28 +0000 https://algalif.is/?p=2499 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýrri verksmiðju líftæknifyrirtækisins Algalífs að Axartröð 1 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Hin nýja 7.000 m²...

The post Fyrsta skóflustunga að nýrri verksmiðju Algalífs í Reykjanesbæ appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýrri verksmiðju líftæknifyrirtækisins Algalífs að Axartröð 1 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Hin nýja 7.000 m² verksmiðja mun rísa við hlið núverandi 5.500 m² starfsstöðvar Algalífs.

Algalif will be the world's biggest producer of natural astaxanthin when its new production plant in Iceland will be operational by the end of 2023.

The post Fyrsta skóflustunga að nýrri verksmiðju Algalífs í Reykjanesbæ appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2021. https://algalif.is/algalif-hlytur-althjodlegu-liftaekniverdlaunin/ Thu, 06 May 2021 08:00:25 +0000 https://algalif.is/?p=2463 Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2021 (e. Biotechnology Awarsds) sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni. Verðlaunin eru veitt árlega í nokkrum mismunandi flokkum, en Algalíf er...

The post Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2021. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2021 (e. Biotechnology Awarsds) sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni.

Verðlaunin eru veitt árlega í nokkrum mismunandi flokkum, en Algalíf er fyrsta íslenska fyrirtækið til að vinna þau. Þetta er í sjötta sinn sem Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin eru veitt. Algalíf framleiðir astaxanthín úr örþörungum sem ræktaðir eru í starfsstöð fyrirtækisins í Reykjanesbæ.

Verðlaunin eru veitt af tímaritinu Global Health and Pharma sem er eitt víðlesnasta og virtasta fagtímarit á sviði heilsuvísinda. Útgefandi er AI Global Media í Bretlandi gefur út tólf mismunandi fagtímarit sem mörg eru leiðandi í umfjöllun á sínu sviði.

Algalíf er lang stærsta örþörungafyrirtæki á Íslandi og í fararbroddi í Evrópu. Það hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi. „Starfsemin hefur gengið mjög að undanförnu og það er afskaplega ánægjulegt að fá viðurkenningu í formi þessara virtu verðlauna“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Photo by Styrmir Kári & Heiðdís Photography.

Í lok síðasta árs var tilkynnt um fyrirhugaða fjögurra milljarða króna stækkun fyrirtækisins (www.algalif.is/staekkun). Sérhæft og vel menntað starfsfólk heldur framleiðslukostnaði Algalífs í skefjum með nýsköpun og nýtingu hátæknilausna á öllum stigum. „Þessi verðlaun eru fyrst og fremst rós í hnappagatið fyrir starfsfólk Algalífs“ segir Orri Björnsson, forstjóri.

Nýlega kynnti Algalíf metnaðarfulla umhverfisstefnu (https://algalif.is/environmental-policy), en öll framleiðslan fer fram í stýrðu hátækni umhverfi innanhúss. „Það hjálpar okkur mikið í markaðssetningu erlendis að vera í fararbroddi í umhverfismálum á alþjóðavísu.“ segir Orri Björnsson, forstjóri.

 

Nánari upplýsingar veitir Svavar Halldórsson, markaðsstjóri Algalífs.

Tölvupóstur: svavar@algalif.com. Sími: 869-4940.

 

Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafa er að finna hér:

www.ghp-news.com/winners/algalif/

www.ghp-news.com/issues/biotechnology-awards-2021

Hér má finna nánari upplýsingar um veitenda verðlaunanna:

www.ghp-news.com

www.aiglobalmedialtd.com/brands

Nánari upplýsingar um Algalíf er að finna hér:

www.algalif.com

 

Myndir:

Photo by Styrmir Kári & Heiðdís Photography.

 

The post Algalíf hlýtur Alþjóðlegu GHP líftækniverðlaunin 2021. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Fjögurra milljarða erlend fjárfesting í stækkun líftæknifyrirtækisins Algalífs. https://algalif.is/fogurra-milljarda-erlend-fjarfesting-i-staekkun-liftaeknifyrirtaekisins-algalifs/ Sat, 19 Dec 2020 16:00:24 +0000 https://algalif.is/?p=2184 Verksmiðjusvæðið mun rúmlega tvöfaldast en framleiðsla á astaxanthíni rúmlega þrefaldast. Rúmlega eitt hundrað innlend störf verða til á framkvæmdatímanum 2021 til 2022 og a.m.k. 35 ný framtíðarstörf munu skapast hjá...

The post Fjögurra milljarða erlend fjárfesting í stækkun líftæknifyrirtækisins Algalífs. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>
Verksmiðjusvæðið mun rúmlega tvöfaldast en framleiðsla á astaxanthíni rúmlega þrefaldast.

Rúmlega eitt hundrað innlend störf verða til á framkvæmdatímanum 2021 til 2022 og a.m.k. 35 ný framtíðarstörf munu skapast hjá fyrirtækinu.

Algalíf verður eitt stærsta örþörunga fyrirtæki í heimi. Stækkunin er að fullu fjármögnuð erlendis frá.

Ákveðið hefur verið að rúmlega þrefalda framleiðslu á astaxanthíni hjá líftæknifyrirtækinu Algalíf í Reykjanesbæ með því að stækka verksmiðju fyrirtækisins um rúmlega helming. Hafist verður handa strax í upphafi næsta árs og rúmlega 100 störf munu skapast á framkvæmdatímanum fram til 2022.

Byggðir verða um 7.000 m² og húsnæðið fer því úr 5.500 m² í um 12.500 m². Ársframleiðslan fer úr rúmum 1.500 kg af hreinu astaxanthíni í rúm 5.000 kg.

Erlend fjárfesting vegna verkefnisins nemur um fjórum milljörðum króna. „Ársveltan mun nærri fjórfaldast eftir stækkun og fara úr einum og hálfum milljarði króna í um fimm og hálfan milljarð“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Sérhæft og vel menntað starfsfólk heldur framleiðslukostnaði Algalífs í skefjum með nýsköpun og nýtingu hátæknilausna á öllum stigum. Því er náttúrulegt astaxanthín frá Algalíf mjög vel samkeppnishæft  á alþjóðamarkaði og sala gengur mun betur en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.

„Öll framleiðsla þessa árs er löngu seld og bróðurpartur framleiðslu næsta árs líka. Markaðshorfur eru mjög góðar og fjögurra milljarða erlend fjárfesting sýnir trú á því sem við erum að gera“ segir Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.

Öll framleiðsla Algalífs á örþörungum fer fram í stýrðu umhverfi innanhúss með umhverfisvænum orkugjöfum, eru bæði magn og gæði stöðug. Úr þörungunum er unnið fæðubótaefnið astaxantín. Algalíf hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi.

Framleiðsla Algalífs á astaxanthíni úr örþörungum er umhverfisvæn og ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í ferlinu. Notast er við sérstök LED ljós og tölvustýrð ljósa- og hitakerfi við ræktun örþörunganna í lokuðum rörakerfum sem þýðir að vatns-, raforku- og landnotkun er í lágmarki.

Binding á koltvísýringi er 80 tonn á ári en verður 250 tonn á ári og kolefnisfótsporið neikvætt sem því nemur. Náttúrlegt astaxanthin frá Algalíf er alþjóðlega vottað af Non-GMO Project.

The post Fjögurra milljarða erlend fjárfesting í stækkun líftæknifyrirtækisins Algalífs. appeared first on Algalif, Icelandic Producer of Pure, High-Grade, Natural Astaxanthin from Microalgae.

]]>